Fræðsluráð

Fræðsluráð fer í umboði bæjarstjórnar Akureyrar með stjórn skólamála bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn lætur þau mál til sín taka. Fræðsluráð er kosin af bæjarstjórn. Fræðslustjóri og rekstrarstjóri Fræðslusviðs sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt.

Einn fulltrúi foreldra, tilnefndur á sameiginlegum fundi fulltrúa foreldrafélaga frá hverjum leikskóla, og einn fulltrúi starfsmanna leikskóla hafa jafnframt rétt til setu á fundum nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt. Fræðsluráð mótar stefnu bæjarins í skólamálum.

Fræðslusvið Akureyrar

Fræðslusvið hefur umsjón með rekstri og starfsmannahaldi grunnskóla, leikskóla og Tónlistarskólans. Fræðslusvið veitir allar almennar upplýsingar um skólastarf á Akureyri, tekur á móti erindum vegna skólamála og fylgir eftir samþykktum fræðsluráðs.

Fræðslustjóri er Karl Frímannsson


© 2016 - 2024 Karellen